Verið hjartanlega velkomin á Gæðastund í Háteigskirkju á morgun þriðjudag 7. mars kl. 13:30-15. Sr. Eiríkur Jóhannsson prestur í Háteigskirkju flytur erindi sem ber titilinn “Sálmaskáldið á Stóra-Núpi”.
Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í Safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem boðið er upp á kaffi og góðar veitingar.
(Myndir frá góðri Gæðastund í Háteigskirkju þann 28. febrúar sl. þegar félagar úr eldri deild Karlakórs Reykjavíkur fluttu flytja nokkur lög. Einnig fylgir mynd af norðurinngangi Safnaðarheimilis kirkjunnar þar sem Gæðastundir fara fram í veislusal á 2. hæð, aðgengi er fyrir alla.)




