– Kl. 11:00 – HÁTÍÐARMESSA. Biskup Íslands, sr. Guðrún Karls Helgudóttir þjónar fyrir altari ásamt sr. Helgu Soffíu Konráðsdóttur sóknarpresti og sr. Ásu Laufeyju Sæmundsdóttur presti. Sr. Tómas Sveinsson, fyrrverandi sóknarprestur prédikar. Kordía, kór Háteigskirkju og Perlukórinn, barna- og unglingakór Háteigskirkju syngja undir stjórn Erlu Rutar Káradóttur, organista. Stjórnandi Perlukórsins er Guðný Alma Haraldsdóttir. Jón Hafsteinn Guðmundsson leikur á trompet. Kaffi, ávaxtasafi og kaffimeðlæti í safnaðarheimilinu að hátíðarmessu lokinni.
– Kl. 20:00 – AÐVENTUKVÖLD. Einar Kárason rithöfundur flytur hátíðarræðu. Kordía kór Háteigskirkju syngur ásamt Drengjakór Reykjavíkur. Stjórnandi Drengjakórsins er Þorsteinn Freyr Sigurðsson, meðleikari er Laufey Sigrún Haraldsdóttir. Jón Guðmundsson og Berglind Stefánsdóttir leika á flautur. Sigurgeir Agnarsson leikur á selló. Tónlistarflutningi stjórnar Erla Rut Káradóttir, organisti. Veitingar verða bornar fram í safnaðarheimili í boði sóknarnefndar að samkomu lokinni.
VERIÐ VELKOMIN! HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ YKKUR!
Ljósmynd: Oddný Ingimarsdóttir.
