Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Drengjakór Reykjavíkur syngur undir stjórn Þorsteins Freys Sigurðssonar. Laufey Sigrún Haraldsdóttir leikur undir á píanó. Kári Hilmarsson leikur á klarinett. Fermingarbörn lesa ritningarlestra. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Prestur er sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Heitt á könnunni, ávaxtasafi og kruðerí í safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.
(Ljósmyndina tók fermingarbarn í snjókomu á dögunum)
