Næsta GÆÐASTUND eldri borgara verður næstkomandi þriðjudag 11. febrúar kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir, sóknarprestur Háteigskirkju, flytur erindi undir yfirskriftinni “Afríka – ferðasaga í máli og myndum”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!
