Næsta GÆÐASTUND eldri borgara á haustmisseri 2025, verður næstkomandi þriðjudag 23. sept. kl. 13:30 til 15

Næsta GÆÐASTUND eldri borgara á haustmisseri 2025, verður næstkomandi þriðjudag 23. sept. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Dr. Tómas Guðbjartsson, prófessor, yfirlæknir og fjallageit, flytur erindi sem ber yfirskriftina „Í þunnu lofti“. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!