Verið hjartanlega velkomin á Gæðastund í Háteigskirkju á morgun þriðjudag 14. mars kl. 13:30-15. Alma Sigurðardóttir sérfræðingur Húsasafns Þjóðminjasafns Íslands flytur erindi um Húsasafnið, merkar minjar og mikilvægi varðveislu.
Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í Safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem boðið er upp á kaffi og góðar veitingar.
(Myndir frá góðri Gæðastund í Háteigskirkju þann 7. mars sl. þegar Sr. Eiríkur Jóhannsson prestur í Háteigskirkju flutti erindi sem bar titilinn “Sálmaskáldið á Stóra-Núpi”. Einnig fylgir mynd af norðurinngangi Safnaðarheimilis kirkjunnar þar sem Gæðastundir fara fram í veislusal á 2. hæð, aðgengi er fyrir alla.)



