Gæðastund í Safnaðarheimilinu þriðjudaginn 21. mars kl 13:30-15

Verið hjartanlega velkomin á Gæðastund í Háteigskirkju á morgun þriðjudag 21. mars kl. 13:30-15. Atli Ingólfsson tónskáld flytur erindi um tónverk sitt “Elsku Borga mín“ þjóðlegan fróðleik byggðan á sendibréfum frá Ásgarði í Dölum.

Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í Safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem boðið er upp á kaffi og góðar veitingar.
(Myndir frá góðri Gæðastund í Háteigskirkju þann 14. mars sl. þegar Alma Sigurðardóttir sérfræðingur Húsasafns Þjóðminjasafns Íslands flutti erindi um Húsasafnið, merkar minjar og mikilvægi varðveislu. Einnig fylgir mynd af norðurinngangi Safnaðarheimilis kirkjunnar þar sem Gæðastundir fara fram í veislusal á 2. hæð, aðgengi er fyrir alla.)