Verið hjartanlega velkomin á Gæðastund í Háteigskirkju á morgun þriðjudag 28. mars kl. 13:30-15. Á þessari síðustu Gæðastund á vormisseri verður HARMÓNIKKUBALL en Ásta Soffía Þorgeirsdóttir harmónikkuleikari kemur og leikur fyrir dansi.
Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í Safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem boðið er upp á kaffi og góðar veitingar.
(Myndir frá góðri Gæðastund í Háteigskirkju þann 21. mars sl. þegar Atli Ingólfsson tónskáld flutti erindi um tónverk sitt “Elsku Borga mín“ þjóðlegan fróðleik byggðan á sendibréfum frá Ásgarði í Dölum. Einnig fylgir mynd af norðurinngangi Safnaðarheimilis kirkjunnar þar sem Gæðastundir fara fram í veislusal á 2. hæð, aðgengi er fyrir alla.)





