Næsta GÆÐASTUND eldri borgara verður næstkomandi þriðjudag 3. mars. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Guðný Einarsdóttir, organisti Grafarvogskirkju og orgelkennari, flytur erindi sem ber yfirskriftina “Geta börn lært á orgel”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!
