Næsta GÆÐASTUND eldri borgara verður næstkomandi þriðjudag 21. okt. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Vigfús Bjarni Albertsson, forstöðumaður Sálgæslu- og fjölskylduþjónustu kirkjunnar, flytur erindi sem ber yfirskriftina “Hver vegur að heiman er vegurinn heim”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!
