Næsta GÆÐASTUND eldri borgara verður næstkomandi þriðjudag 14. okt. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Bára Friðriksdóttir, verkefnastjóri Eldriborgararáðs
Rvkprófastsdæma eystra & vestra, flytur erindi sem ber yfirskriftina: „Saga og verkefni Eldriborgarararáðs”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!
