Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara í dag, þriðjudag 11. nóv. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Jón Atli Benediktsson, prófessor í verkfræði og fyrrv. rektor Háskóla Íslands, flytur erindi sem ber yfirskriftina “Að stjórna háskóla”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!
