GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 4. nóv. kl. 13:30 til 15

Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 4. nóv. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Gísli Pálsson, rithöfundur og mannfræðingur, flytur erindi sem ber yfirskriftina “Hans Jónatan: Maðurinn sem stal sjálfum sér””. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!