GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 24. feb. kl. 13:30 til 15

Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 24. feb. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Gísli Georgsson, verkfræðingur, flytur erindi sem ber yfirskriftina “Nýi Landspítalinn, þróun, framkvæmdir og framtíð”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!