Gæðastund eldri borgara á morgun þriðjudag 17. okt. kl. 13:30-15

Minnum á Gæðastund eldri borgara á morgun þriðjudag 17. október kl. 13:30-15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Á þessari fjórðu Gæðastund á haustmisseri 2023 flytur Gissur Páll Gissurarson, tenór, erindi sem ber titilinn „Gildi matar og tónlistar fyrir fagurfræði daglegs lífs“. Að erindinu loknu verður boðið upp á kaffi og góðar veitingar. Hlökkum til að sjá ykkur ! (SJÁ HEILDARDAGSKRÁ GÆÐASTUNDA Á HAUSTMISSERI 2023 NEÐAR)

Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem ávallt er boðið upp á kaffi og góðar veitingar.
(Myndirnar sem fylgja eru frá góðri Gæðastund sl. þriðjudag 10. okt. en þá flutti Ármann Reynisson rithöfundur erindi sem bar titilinn “Vinjettur… lifandi örsögur með fjölbreyttu efni úr lífinu og umhverfinu”).

Dagskrá Gæðastunda í Háteigskirkju haustmisseri 2023
Tími: Þriðjudaga kl. 13:30-15.
Staðsetning: Safnaðarheimili Háteigskirkju (norðurinngangur) í veislusal á 2. hæð.

  1. sept Sr. Davíð Þór Jónsson, prestur í Háteigskirkju. (Allt uns festing brestur, um efni og ljóðform dróttkvæðs háttar, eins hins dýrasta í íslenskri bragfræði)
  2. okt KONFEKTBINGÓ (Við spilum bingó saman undir léttum tónum – vinningarnir eru konfektkassar með ljúffengum súkkulaðimolum)
  3. okt Ármann Reynisson, rithöfundur. (Vinjettur… lifandi örsögur með fjölbreyttu efni úr lífinu og umhverfinu)
  4. okt Gissur Páll Gissurarson, tenór. (Gildi matar og tónlistar fyrir fagurfræði daglegs lífs)
  5. okt Arna Guðný Valsdóttir, myndlistakona, listkennari við VMA og stjórnarmaður Gilfélagsins á Akureyri. (Listagilið, orkuveita í norðlensku lista- og menningarlífi)
  6. okt Ellert Þór Jóhannsson, rannsóknarlektor hjá Árnastofnun. (Elstu heimildir um íslensku. Fjallað um þróun íslensku og birtingu í elstu handritum, rit á íslensku sem varðveist hafa frá miðöldum og staðsetningu elstu handrita, orðaforða elstu texta og hvernig hann er frábrugðinn nútímamáli)
  7. nóv Lilja Árnadóttir, þjóðháttafræðingur og fyrrv. fagstjóri munasafns Þjóðminjasafns Íslands. (Refilsaumuðu íslensku altarisklæðin)
  8. nóv Inga Elín, myndlistarkona og hönnuður. (Lífsverkið)
  9. nóv Edda Björgvins, leikkona. (Húmor og hamingja – dauðans alvara)
  10. nóv Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur Rvík-eystra og Sigurður Grétarsson prófessor. (Spila létt lög á saxófón og gítar og segja skemmtisögur, m.a. jólasögu)
    JÓLAHLÉ – Dagskrá Gæðastunda á vormisseri 2024 auglýst síðar