Gæðastund eldri borgara á morgun 3. október kl 13:30 til 15 – KONFEKTBINGÓ

Minnum á Gæðastund eldri borgara á morgun þriðjudag 3. október kl. 13:30-15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Á þessari annarri Gæðastund á haustmisseri 2023 spilum við KONFEKTBINGÓ upp á ljúffengt konfekt. Að bingóinu loknu verður boðið upp á kaffi og góðar veitingar. Hlökkum til að sjá ykkur !

Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem ávallt er boðið upp á kaffi og góðar veitingar.
(Myndirnar sem fylgja eru frá góðri Gæðastund sl. þiðjudag en þá flutti Sr. Davíð Þór Jónsson erindi sem bar titilinn „Allt uns festing brestur, um efni og ljóðform dróttkvæðs háttar, eins hins dýrasta í íslenskri bragfræði“.)

Sjá dagskrá Gæðastunda á haustmisseri 2023 neðar:

Dagskrá Gæðastunda í Háteigskirkju haustmisseri 2023


Tími:                Þriðjudaga kl. 13:30-15.
Staðsetning:    Safnaðarheimili Háteigskirkju (norðurinngangur) í veislusal á 2. hæð.

Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem boðið er upp á kaffi og góðar veitingar. Verið hjartanlega velkomin !

Dagskrá:

26. sept                  Sr. Davíð Þór Jónsson, prestur í Háteigskirkju. (Allt uns festing brestur, um efni og ljóðform dróttkvæðs háttar, eins hins dýrasta í íslenskri bragfræði)

3. okt                      KONFEKTBINGÓ (Við spilum bingó saman undir léttum tónum – vinningarnir eru konfektkassar með ljúffengum súkkulaðimolum).

10. okt                    Ármann Reynisson, rithöfundur. (Vinjettur… lifandi örsögur með fjölbreyttu efni úr lífinu og umhverfinu.)

17. okt                    Gissur Páll Gissurarson, tenór. (Gildi matar og tónlistar fyrir fagurfræði daglegs lífs)

24. okt                    Arna Guðný Valsdóttir, myndlistakona, listkennari við VMA og stjórnarmaður Gilfélagsins á Akureyri. (Listagilið, orkuveita í norðlensku lista- og menningarlífi)

31. okt                    Ellert Þór Jóhannsson, rannsóknarlektor hjá Árnastofnun. (Elstu heimildir um íslensku.  Fjallað um þróun íslensku og birtingu í elstu handritum, rit á íslensku sem varðveist hafa frá miðöldum og staðsetningu elstu handrita, orðaforða elstu texta og hvernig hann er frábrugðinn nútímamáli)

7. nóv                     Lilja Árnadóttir, þjóðháttafræðingur og fyrrv. fagstjóri munasafns Þjóðminjasafns Íslands. (Refilsaumuðu íslensku altarisklæðin)

14. nóv                   Inga Elín, myndlistarkona og hönnuður. (Lífsverkið)

21. nóv                   Edda Björgvins, leikkona. (Húmor og hamingja – dauðans alvara)

28. nóv                   Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur Rvík-eystra og Sigurður Grétarsson professor. (Spila létt lög á saxófón og gítar og segja skemmtisögur, m.a. jólasögu)

JÓLAHLÉ – Dagskrá Gæðastunda á vormisseri 2024 auglýst síðar