Foreldramorgun á morgun, miðvikudag 4. október kl. 10-11:30

Minnum á Foreldramorgun í Háteigskirkju á morgun, miðvikudag 4. október kl. 10-11:30. Boðið verður upp á létta Krílasálma þennan miðvikudag, en Krílasálmar eru söng- og skynjunarupplifunarstundir fyrir ungabörn. Foreldrar mæta með börn sín í Setrið, kaffistofurými á fyrstu hæð í Safnaðarheimili Háteigskirkju. Krílasálmastundin hefst um kl. 10:20 og tekur um 20 mínútur og að henni lokinni er boðið upp á kaffi/te.

Foreldrar með ungabörn verið velkomin !