Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir hefur umsjón með stundinni. Hrönn Helgadóttir organisti leiðir tónlistina. Umfjöllunarefnið er kærleikurinn. Notaleg stund fyrir alla aldurshópa. Kaffi og djús í safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni.
Kl. 12:20 hefst verkefnið “Jól í skókassa” í safnaðarheimilinu, öllum er velkomið að taka þátt í verkefninu (sjá nánar um verkefnið í auglýsingu á miðlum Háteigskirkju).
Meðfylgjandi myndir sýna biskup Íslands, Guðrúnu Karls Helgudóttur, þegar hún heimsótti Háteigskirkju í vikunni til að taka upp efni fyrir samfélagsmiðla Biskupsstofu. Biskup fjallaði um BLEIKAN OKTÓBER
og flutti fallega bæn fyrir þau sem greinst hafa með krabbamein, fjölskyldur þeirra og alla sem líða, kvíða og stríða. Biskup benti á að 272 konur greinast með brjóstakrabbamein árlega á Íslandi. Í framhaldi blessaði biskup vatn sem stendur í skál fremst í kirkjuskipi Háteigskirkju. Blessað, heilagt vatn er ávallt fremst í kirkjuskipinu og trúin er sú að sá sem ber á sig blessað, heilagt vatn hljóti náð og blessun Guðs, hamingju og velferð.
Verið velkomin í Háteigskirkju.
Bæn biskups á bleikum október:
“Guð lífsins.
Kom með ljósið þitt og lýstu þeim er líða.
Kom með friðinn þinn og hugga þau sem kvíða.
Kom með kærleiksanda þinn og umvef þau sem stríða.
Guð lífsins og vonarinnar, kom til þeirra sem greinst hafa með krabbamein. Gef þeim styrk þinn og von. Blessa fjölskyldur þeirra og ástvini alla.
Hjálpa okkur Guð að styðja hvert annað og vera náunganum sannur náungi.
Guð, vertu loftið tæra sem ég anda að mér og höndin sem ég fæ að hvíla í þegar allt, þegar allt er byrði.
Í Jesú nafni. Amen.”
