GÆÐASTUND eldri borgara næstkomandi þriðjudag 13. október, kl. 13:30 til 15

Næsta GÆÐASTUND eldri borgara verður næstkomandi þriðjudag 13. október, kl. 13:30 til 15 í Safnaðarheimili Háteigskirkju. Berglind Rán Ólafsdóttir, forstjóri ORF Líftækni, flytur erindi sem ber yfirskriftina: “Byggkjöt og framtíðar fæða”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!