GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 24. mars. kl. 13:30 til 15

Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 24. mars. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Við spilum KONFEKTBINGÓ með PÁSKAÞEMA. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!
(Vinsamlegast athugið að um er að ræða síðustu Gæðastund á þessu vormisseri. Dagskrá Gæðastunda á haustmisseri 2026 verður auglýst síðar).