GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 27. jan. kl. 13:30 til 15

Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 27. jan. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Dr. AlmaDís Kristinsdóttir, menntunar- og safnafræðingur, flytur erindi sem ber yfirskriftina: “Menntunarhlutverk safna”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!