Fyrsta GÆÐASTUND eldri borgara á vormisseri 2026 verður næstkomandi þriðjudag 20. jan. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Örn Magnússon, organisti og tónlistarmaður, flytur erindi sem ber yfirskriftina “Forn hljóðfæri og tónlist”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!
