Fermingarstarf 2026-2027

Fermingarfræðsla í Háteigskirkju fyrir börn sem eru fædd 2013 hefst með skráningarmessu síðla í ágúst næstkomandi (nánari upplýsingar síðar).  Fræðslan fer fram á fimmtudögum á eftirtöldum tímum, nema annað verði tilkynnt:

Hlíðaskóli        fimmtudagar kl. 16:00
Háteigsskóli    fimmtudagar kl. 17:00

FERMINGARDAGAR  NÆSTA  VOR  2027  verða eftirfarandi:

Pálmasunnudagur    21. mars 2027
Annar í páskum        29. mars 2027
Sunnud. e. páska         4. apríl 2027
 

Fermingardagar á þarnæsta ári, vorið 2028, verða tilkynntir síðar:

– – – – – – 
– – – – – –
– – – – – –

Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir, sóknarprestur og sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir prestur hafa umsjón með fermingarfræðslunni og ferma börnin.

Bréf til allra barna í Háteigssókn fæddra 2013 og forráðamanna þeirra verður sent út á vordögum 2026.  Þar komu fram allar upplýsingar um fyrirkomulag fermingarfræðslunnar í Háteigskirkju veturinn 2026-2027.)

 

ALMENNT UM FERMINGARFRÆÐSLUNA:

Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir, sóknarprestur og sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir hafa umsjón með fermingarfræðslunni og ferma börnin.  Nánari upplýsingar má nálgast hjá henni en bréf til allra barna á fermingaraldri í Háteigssókn þar sem tilkynnt er um fermingarfræðslu komandi vetrar er sent  á lögheimili þeirra í maílok árið fyrir fermingarárið. Annað bréf sama efnis er sent til barnanna síðsumars (um eða upp úr miðjum ágúst).

Börn utan Háteigssóknar geta óskað eftir því að sækja fermingarfræðslu og að vera fermd í Háteigskirkju, haft er samband við sóknarprest, sr. Helgu Soffíu Konráðsdóttur (helgasoffia@simnet.is  eða  gsm. 860 9997), sé þess óskað.

Fermingarfræðsla í Háteigskirkju fyrir börn hefst með skráningarmessu að hausti ár hvert (í ágústlok eða septemberbyrjun á tilkynntum degi). Fermingarfræðslan fer fram á fimmtudögum á eftirtöldum tímum (að óbreyttu, verði breytingar á er tilkynnt um það):

Hlíðaskóli        fimmtudagar kl. 16:00
Háteigsskóli    fimmtudagar kl. 17:00

Fermingar fara fram í kringum páska á tilkynntum dögum (almennt á Pálmasunnudag, Annan í páskum og á sunnudegi eftir páskaþað fer þó eftir dagatali ár hvert og fjölda fermingarbarna). Tilkynnt er um fermingardaga ár hvert, almennt eru þrjár dagsetningar í boði. Reynt að koma því fyrir þannig að barn og fjölskylda velji fermingardag barnsins sjálf úr þeim þremur fermingardögum sem í boði eru ár hvert (getur breyst, t.a.m. eftir fjölda fermingarbarna). Fermingar fara fram kl. 10:30 (en ekki 11:00 eins og þegar almenn messa/guðsþjónusta er).

Auk þess að mæta í fermingarfræðslu eiga fermingarbörn að mæta í messu 10 sinnum yfir fermingarfræðsluveturinn, frá því að fermingarfræðsla byrjar og fram að fermingu. Fermingarbörn skrá mætingu í messu á þar til gert skráningarblað sem liggur í anddyri kirkjunnar á messudögum. (Fermingarbörn geta mætt í messu í annarri kirkju og skulu þá leita til kirkjuvarðar þar um að fá  staðfestingu á mætingu og skila í næstu fermingarfræðslu).

Fermingarbörnum hefur verið boðið ár hvert að fara í Vatnaskóg yfir helgi með prestunum sem sinna fermingarfræðslunni (dagsetning ferðarinnar fyrir fermingarbörn vorsins 2027 verður tilkynnt síðar). Ferðin er liður í fermingarfræðslu vetrarins en fermingarbörnum er þó ekki skylt að fara í ferðina.

Foreldrar/forráðamenn greiða fermingargjald  fyrir fermingarfræðslu auk gjalds fyrir kyrtilhreinsun. Greitt er aukalega fyrir ferð í Vatnaskóg. Fermingargjald vegna fermingar vor 2026 var eftirfarandi:

Helgarferð í Vatnaskóg                                                                                13.000 kr.
(fyrir gistingu og mat.
Tilkynnt verður síðar um dags.  greiðslu)

Fræðslugjald (greitt í byrjun fermingarárs, dags. tilk. síðar)               25.000 kr.

Kyrtilhreinsun (greitt í byrjun fermingarárs, dags. tilk. síðar)              4.000 kr.

Samtals 2025-2026 með ferð í Vatnaskóg:                                              42.000 kr.
Samtals 2025-2026 án ferðar í Vatnaskóg:                                              29.000 kr.

Gera má ráð fyrir einhverri hækkun gjaldsins á milli ára.                       

Gefinn er út bæklingur ár hvert, sem skráð fermingarbörn fá afhentan, með yfirliti yfir fermingarfræðslu vetrarins þar sem fram koma dagsetningar og efni hvers fermingarfræðslutíma.

Kyrtlamátunardagsetning og -tími fyrir fermingarbörn vorið 2027 í safnaðarheimili Háteigskirkju verður auglýst síðar. 

 – – – – – – – – – –