Messa kl.11 þann 21. maí.

Messað verður kl.11 þann 21. maí. Prestur verður Eiríkur Jóhannsson. Organisti Arngerður María Árnadóttir. Raddbandafjelagið sér um messusöng að þessu sinni. Eftir messu er að vanda heitt á könnuni í safnaðarheimilinu.

Útvarpsmessa frá Háteigskirkju síðastliðinn sunnudag 14. maí

Útvarpsmessa Ríkisútvarpsins í gær sunnudaginn 14. maí, Hinn almenna bænadag og Mæðradag, var tekin upp í Háteigskirkju. 
Hlekkur til að hlusta á messuna er hér: 
https://www.ruv.is/utvarp/spila/gudsthjonusta/24228/7hi3je
Séra Eiríkur Jóhannsson predikaði og þjónaði fyrir altari.
Organisti, píanóleikari og kórstjóri var Guðný Einarsdóttir.
Kordía, kór Háteigskirkju og Perlukór, barna- og unglingakór Háteigskirkju sungu.
Baldur Smárason las ritningarlestra.
FYRIR PREDIKUN:
Forspil: Dagur austurloft upp ljómar. Lag: Stefán Arason. Texti: Þórarinn Jónsson.
Sálmur 732: Mill líf er eins og lag. Lag og texti: Robert Lowry. Íslenskur texti: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson.
Sálmur 261: Drottinn, miskunna, miskunna þú oss. Lag: G.M. Kolisi. Texti úr Biblíunni.
Sálmur 270: Dýrð þér, dýrð þér. Lag og texti: Pablo Sosa. Íslenskur texti: Kristján Valur Ingólfsson.
Sálmur 280. Við heyrum Guðs heilaga orð. Lag: Fintan O’Carill og Christopher Walker. Texti: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson.
Kórsöngur: Sálmurinn um fuglinn. Lag og texti: Olga Guðrún Árnadóttir.
EFTIR PREDIKUN:
Kórsöngur: Þú sem himninum ræður. Lag: Stefán Arason. Texti: Lisbeth Smedegaard-Andersen. Íslenskur texti: Guðný Einarsdóttir.
Sálmur 319: Þú sem líf af lífi gefur. Lag: Johann Crüger. Texti: Hjálmar Jónsson.
Kórsöngur: Drottinn er minn hirðir. Lag: Björn Önundur Arnarson. Sálmur nr. 23.
766 Nú skrúða grænum skrýðist fold. Lag: Walsemar Åhlén. Texti: Carl D. av Wirsén. Íslenskur texti: Karl Sigurbjörnsson.
Eftirspil: Birting, Arngerður María Árnadóttir

FORELDRAMORGNAR í sumarhlé

Foreldramorgnum á vormisseri í Háteigskirkju er nú lokið og verða þeir aftur í boði í haust, en þá munum við einnig bjóða upp á Krílasálma, sem er tónlistarupplifunarnámskeið fyrir yngstu börnin og foreldra. Dagsetningar og tími verður auglýst í sumarlok. Hlökkum til að sjá ykkur í haust, njótið sumars og sólar ! 

Helgihald sunnudaginn 14. maí – Hinn almenna bænadag og uppstigningardag fimmtudaginn 18. maí


Sunnudagurinn 14. maí – Hinn almenni bænadagur. Messa kl. 11:00.  Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari.  Ari Jóhann Ingu- Steinunnarson leikur einleik á orgel.  Kordía, kór Háteigskirkju syngur undir stjórn organistans, Guðnýjar Einarsdóttur.  Aðalsafnaðarfundur Háteigssóknar verður haldinn í Safnaðarheimilinu að messu lokinni.  Verið öll hjartanlega velkomin.

Uppstigningardagur, dagur aldraðra í kirkjunni, fimmtudaginn 18. maí. Messa kl. 14:00.  Séra Eiríkur Jóhannsson þjónar fyrir altari, Séra Tómas Sveinnsson fyrrverandi sóknarprestur Háteigsprestakalls flytur prédikun. Eldri félagar Karlakórs Reykjavíkur annast messusönginn undir stjórn Arons Axels Cortes. Organisti er Arngerður María Árnadóttir. Léttar kaffiveitingar eftir messu.

Sunnudagur 7. maí – fjórði sunnudagur eftir páska

Messa í Háteigskirkju sunnudaginn 7. maí kl. 11:00. Perlukór Háteigskirkju og Kordía, kór Háteigskirkju, syngja undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur. Séra Þorvaldur Víðisson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Jesús segir í guðspjalli dagsins: „Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hvert annað eins og ég hef elskað yður.“ Verið hjartanlega velkomin í Háteigskirkju.

Aðalsafnaðarfundur Háteigssóknar sunnudaginn 14. maí

Háteigskirkja
Aðalsafnaðarfundur Háteigssóknar verður haldinn sunnudaginn 14. maí n.k, að lokinni guðsþjónustu sem hefst kl. 11:00. Fundurinn verður í safnaðarheimili kirkjunnar.
Dagskrá – venjuleg aðalfundarstörf.
Allir hjartanlega velkomnir.
Sóknarnefnd Háteigskirkju

Sunnudagur 30. apríl – þriðji sunnudagur eftir páska

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.  Vigdís Kristjánsdóttir, 8 ára nemandi í Vesturbæjarskóla, leikur einleik á orgel.  Kór Ísaksskóla syngur undir stjórn Bjargar Þórsdóttur.  Organisti er Guðný Einarsdóttir.  Prestur er sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.  Kaffi, kex og djús í Safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni.  Verið öll hjartanlega velkomin.

Foreldramorgunn miðvikudaginn 26. apríl

Foreldrar með ungabörn:
Verið hjartanlega velkomin á Foreldramorgunn í Háteigskirkju á morgun, miðvikudaginn 26. apríl kl. 9:00 – 10:00 í Safnaðarheimili kirkjunnar (norðurinngangur, í Setrinu – kaffistofurými á 1. hæð, gengið strax til hægri inn á stuttan gang þegar komið er inn í Safnaðarheimilið). Kaffi, spjall og leikföng fyrir börnin að skoða.

Messa sunnudaginn 23. apríl kl. 11

Sunnudagur 23. apríl: Messa kl. 11. Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kordíu, kór Háteigskirkju, syngja.
Organisti er Guðný Einarsdóttir.
Kaffispjall í safnaðarheimili eftir messu.
Verið hjartanlega velkomin !

Foreldramorgunn miðvikudaginn 19. apríl

Foreldrar með ungabörn:

Verið hjartanlega velkomin á Foreldramorgunn í Háteigskirkju á morgun, miðvikudaginn 19. apríl kl. 9:00 – 10:00 í Safnaðarheimili kirkjunnar (norðurinngangur, í Setrinu – kaffistofurými á 1. hæð, gengið strax til hægri inn á stuttan gang þegar komið er inn í Safnaðarheimilið). Kaffi, spjall og leikföng fyrir börnin að skoða.