Messa kl. 11. Sr. Davíð Þór Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Karlakór Reykjavíkur syngja og organisti er Erla Rut Káradóttir. Að messu lokinni er boðið upp á kaffi í Safnaðarheimili kirkjunnar. Verið öll hjartanlega velkomin.

Messa kl. 11. Sr. Davíð Þór Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Karlakór Reykjavíkur syngja og organisti er Erla Rut Káradóttir. Að messu lokinni er boðið upp á kaffi í Safnaðarheimili kirkjunnar. Verið öll hjartanlega velkomin.

Minnum á Foreldramorgun í Háteigskirkju á morgun, miðvikudag 4. október kl. 10-11:30. Boðið verður upp á létta Krílasálma þennan miðvikudag, en Krílasálmar eru söng- og skynjunarupplifunarstundir fyrir ungabörn. Foreldrar mæta með börn sín í Setrið, kaffistofurými á fyrstu hæð í Safnaðarheimili Háteigskirkju. Krílasálmastundin hefst um kl. 10:20 og tekur um 20 mínútur og að henni lokinni er boðið upp á kaffi/te.
Foreldrar með ungabörn verið velkomin !

Minnum á Gæðastund eldri borgara á morgun þriðjudag 3. október kl. 13:30-15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Á þessari annarri Gæðastund á haustmisseri 2023 spilum við KONFEKTBINGÓ upp á ljúffengt konfekt. Að bingóinu loknu verður boðið upp á kaffi og góðar veitingar. Hlökkum til að sjá ykkur !
Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem ávallt er boðið upp á kaffi og góðar veitingar.
(Myndirnar sem fylgja eru frá góðri Gæðastund sl. þiðjudag en þá flutti Sr. Davíð Þór Jónsson erindi sem bar titilinn „Allt uns festing brestur, um efni og ljóðform dróttkvæðs háttar, eins hins dýrasta í íslenskri bragfræði“.)
Sjá dagskrá Gæðastunda á haustmisseri 2023 neðar:





Dagskrá Gæðastunda í Háteigskirkju haustmisseri 2023
Tími: Þriðjudaga kl. 13:30-15.
Staðsetning: Safnaðarheimili Háteigskirkju (norðurinngangur) í veislusal á 2. hæð.
Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem boðið er upp á kaffi og góðar veitingar. Verið hjartanlega velkomin !
Dagskrá:
26. sept Sr. Davíð Þór Jónsson, prestur í Háteigskirkju. (Allt uns festing brestur, um efni og ljóðform dróttkvæðs háttar, eins hins dýrasta í íslenskri bragfræði)
3. okt KONFEKTBINGÓ (Við spilum bingó saman undir léttum tónum – vinningarnir eru konfektkassar með ljúffengum súkkulaðimolum).
10. okt Ármann Reynisson, rithöfundur. (Vinjettur… lifandi örsögur með fjölbreyttu efni úr lífinu og umhverfinu.)
17. okt Gissur Páll Gissurarson, tenór. (Gildi matar og tónlistar fyrir fagurfræði daglegs lífs)
24. okt Arna Guðný Valsdóttir, myndlistakona, listkennari við VMA og stjórnarmaður Gilfélagsins á Akureyri. (Listagilið, orkuveita í norðlensku lista- og menningarlífi)
31. okt Ellert Þór Jóhannsson, rannsóknarlektor hjá Árnastofnun. (Elstu heimildir um íslensku. Fjallað um þróun íslensku og birtingu í elstu handritum, rit á íslensku sem varðveist hafa frá miðöldum og staðsetningu elstu handrita, orðaforða elstu texta og hvernig hann er frábrugðinn nútímamáli)
7. nóv Lilja Árnadóttir, þjóðháttafræðingur og fyrrv. fagstjóri munasafns Þjóðminjasafns Íslands. (Refilsaumuðu íslensku altarisklæðin)
14. nóv Inga Elín, myndlistarkona og hönnuður. (Lífsverkið)
21. nóv Edda Björgvins, leikkona. (Húmor og hamingja – dauðans alvara)
28. nóv Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur Rvík-eystra og Sigurður Grétarsson professor. (Spila létt lög á saxófón og gítar og segja skemmtisögur, m.a. jólasögu)
JÓLAHLÉ – Dagskrá Gæðastunda á vormisseri 2024 auglýst síðar
Messa kl. 11. Sr. Davíð Þór Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur og organisti er Erla Rut Káradóttir. Að messu lokinni er boðið upp á kaffi í Safnaðarheimili kirkjunnar. Verið öll hjartanlega velkomin.
(Myndin sem fylgir er ný forsíðumynd á Facebook síðu Háteigskirkju, sem gefur innsýn í hið fjölbreytta starf sem fram fer í Háteigskirkju)

Minnum á Foreldramorgun í Háteigskirkju á morgun, miðvikudag 27. september kl. 10-11:30. Við munum bjóða upp á létta Krílasálma næstu tvo miðvikudaga á foreldramorgnum, en Krílasálmar eru söng- og skynjunarupplifunarstundir fyrir ungabörn. Foreldrar mæta með börn sín í Setrið, kaffistofurými á fyrstu hæð í Safnaðarheimili Háteigskirkju. Krílasálmastundin hefst um kl. 10:20 og tekur um 20 mínútur og að henni lokinni er boðið upp á kaffi/te.
Foreldrar með ungabörn verið velkomin !

Messa kl. 11. Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur og organisti er Guðný Einarsdóttir. Að messu lokinni er boðið upp á kaffi í Safnaðarheimili kirkjunnar. Verið öll hjartanlega velkomin.
(Myndin sem fylgir er frá hljómfagurri æfingu í Háteigskirkju í morgun sem gladdi gesti er litu við í kirkjunni).

Haustmisseri Gæðastunda eldri borgara í Háteigskirkju 2023 hefst næstkomandi þriðjudag 26. september. Verið hjartanlega velkomin á Gæðastund þann dag kl. 13:30-15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili kirkjunnar. Á þessari fyrstu Gæðastund á haustmisseri flytur Sr. Davíð Þór Jónsson erindi sem ber titilinn „Allt uns festing brestur, um efni og ljóðform dróttkvæðs háttar, eins hins dýrasta í íslenskri bragfræði“. Að erindinu loknu verður boðið upp á kaffi og góðar veitingar. Hlökkum til að sjá ykkur !
Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem ávallt er boðið upp á kaffi og góðar veitingar.
(Myndirnar sem fylgja eru frá góðum Gæðastundum í Háteigskirkju sl. vetur. Einnig fylgir mynd af norðurinngangi Safnaðarheimilis kirkjunnar þar sem Gæðastundir fara fram í veislusal á 2. hæð, aðgengi er fyrir alla.)






Erla Rut Káradóttir hefur verið ráðin organisti og kórstjóri við Háteigskirkju í stað Guðnýjar Einarsdóttur sem hefur verið ráðin Söngmálastjóri og skólastjóri Tónskóla Þjóðkirkjunnar.
Erla Rut er fædd 1989 og er með kantorspróf frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar, BA í mannfræði frá HÍ og BA í kirkjutónlist frá Listaháskóla Íslands. Erla Rut hefur starfað sem organisti og kórstjóri við ýmsar kirkjur frá 2015.
Erla Rut býr í Háteigssókn með eiginmanni sínum og þremur börnum. Hún hefur þegar hafið störf að hluta, hún hefur tekið við stjórn Perlukórsins, barna – og unglingakórs Háteigskirkju, og mun taka við öðrum verkefnum organista og kórstjóra á næstu vikum.
Við bjóðum Erlu Rut hjartanlega velkomna til starfa við Háteigskirkju og hlökkum til samstarfsins við hana.

Minnum á Foreldramorgun í Háteigskirkju á morgun, miðvikudag 20. september kl. 10-11:30. Við munum bjóða upp á létta Krílasálma næstu þrjá miðvikudaga á foreldramorgnum, en Krílasálmar eru söng- og skynjunarupplifunarstundir fyrir ungabörn. Foreldrar mæta með börn sín í Setrið, kaffistofurými á fyrstu hæð í Safnaðarheimili Háteigskirkju. Krílasálmastundin hefst um kl. 10:20 og tekur um 20 mínútur og að henni lokinni er boðið upp á kaffi/te.
Foreldrar með ungabörn verið velkomin !

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Perlukórinn barna- og unglingakór Háteigskirkju syngur. Organisti og kórstjóri er Guðný Einarsdóttir. Prestur er sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Kaffi, kex og djús í Safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin !
