Foreldrar og börn

FJÖLSKYLDUSAMVERUR  Í  HÁTEIGSKIRJKU  Á  MIÐVIKUDÖGUM:
Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir hefur yfirumsjón með barnastarfi á vegum Háteigskirkju og stýrir hún Fjölskyldusamverum á miðvikudögum. Ása Laufey er í orlofi sem stendur og sér Matthías Guðmundsson guðfræðinemi um Fjölskyldusamverur í fjarveru hennar. Sjá auglýsingu hér til hliðar fyrir upplýsingar um Fjölskyldusamverur.

ATH ! – Dagskrá fyrir Fjölskyldusamverur á vormisseri 2026 verður auglýst síðar.

Foreldrum með ung börn er jafnframt bent á að boðið er upp á FORELDRAMORGNA  Í  HALLGRÍMSKIRKJU vikulega á miðvikudögum milli kl. 10-12 (gengið inn um litlar dyr á bogabyggingu beint á bak við kirkjuna). Nánar: https://www.hallgrimskirkja.is/is/born-og-unglingar/foreldramorgnar 

Þá er foreldrum með ung börn einnig bent á að MEMMM opinn leikskóli býður upp á fjölskyldustundir fyrir foreldra og ung börn, m.a. FJÖLSKYLDUSTUND  Í  SAMFÉLAGSHÚSINU  í Bólstaðarhlíð 43 á fimmtudögum kl. 13-15. Nánar: https://memmmplay.is/    og    https://www.facebook.com/bolstadarhlid/?locale=is_IS .