Kæru íbúar Háteigssóknar – vinsamlegast ATHUGIÐ!

Í dag, fimmtudaginn 6. nóvember milli kl. 17 og 18, munu börn úr fermingarfræðslu í Háteigskirkju taka þátt í söfnun fermingarbarna á öllu landinu til stuðnings Hjálparstarfs kirkjunnar. Safnað er fyrir vatnsverkefni í Afríku og sértækri innanlandsaðstoð á Íslandi og er söfnunin í samhengi við þann hluta fermingarfræðslunnar sem snýr að samspili trúar og siðar. Börnin munu banka á dyr við götur í Háteigssókn með söfnunarbauka frá Hjálparstarfi kirkjunnar. Það er okkar von að þið sýnið þeim sem fyrr vinsemd í þessu verkefni þeirra.

Hlýjar kveðjur,
prestar og starfsfólk Háteigskirkju og Hjálparstarfs kirkjunnar

GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 4. nóv. kl. 13:30 til 15

Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 4. nóv. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Gísli Pálsson, rithöfundur og mannfræðingur, flytur erindi sem ber yfirskriftina “Hans Jónatan: Maðurinn sem stal sjálfum sér””. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!

GÆÐASTUND eldri borgara næstkomandi þriðjudag 4. nóv. kl. 13:30 til 15

Næsta GÆÐASTUND eldri borgara verður næstkomandi þriðjudag 4. nóv. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Gísli Pálsson, rithöfundur og mannfræðingur, flytur erindi sem ber yfirskriftina “Hans Jónatan:
Maðurinn sem stal sjálfum sér””. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!

Sunnudagur 2. nóvember- Allra heilagra messa

Messa kl. 11.  Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari.  Valskórinn syngur undir stjórn Báru Grímsdóttur.  Organisti er Erla Rut Káradóttir.  Heitt á könnunni, djús og kruðerí í safnaðarheimilinu að messu lokinni.  Verið öll hjartanlega velkomin.

FJÖLSKYLDUSAMVERA á morgun MIÐVIKUDAG 29. OKTÓBER kl. 17-18:30

Minnum á FJÖLSKYLDUSAMVERU á morgun MIÐVIKUDAG 29. OKTÓBER kl. 17-18:30 í safnaðarheimili Háteigskirkju. Umsjón hefur Matthías Guðmundsson guðfræðinemi. Sjá nánari upplýsingar á meðfylgjandi auglýsingu. Verið öll hjartanlega velkomin!

GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 28. okt. kl. 13:30 til 15

Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 28. okt. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Gísli Pálsson, rithöfundur og mannfræðingur, flytur erindi sem ber yfirskriftina “Hans Jónatan:
Maðurinn sem stal sjálfum sér”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!

GÆÐASTUND eldri borgara næstkomandi þriðjudag 28. okt. kl. 13:30 til 15

Næsta GÆÐASTUND eldri borgara verður næstkomandi þriðjudag 28. okt. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Gísli Pálsson, rithöfundur og mannfræðingur, flytur erindi sem ber yfirskriftina “Hans Jónatan:
Maðurinn sem stal sjálfum sér””. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!