Messa kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju, syngur. Organisti og kórstjóri er Erla Rut Káradóttir. Heitt á könnunni, djús og kruðerí í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.
Kordía, kór Háteigskirkju, heldur tónleika í Háteigskirkju næstkomandi þriðjudag 25. nóvember kl 20. Tónleikarnir eru haldnir í tilefni af 60 ára vígsluafmæli Háteigskirkju.
Gloría, eftir Antonio Vivaldi (RV 589), verður flutt ásamt öðrum verkum, en m.a. verða frumflutt verk eftir Arngerði Maríu Árnadóttur og Björn Önund Arnarsson. Einsöngvarar eru úr röðum kórfélaga.
Minnum á FJÖLSKYLDUSAMVERU á morgun MIÐVIKUDAG 19. NÓVEMBER kl. 17-18:30 í safnaðarheimili Háteigskirkju. Umsjón hefur Matthías Guðmundsson guðfræðinemi. Sjá nánari upplýsingar á meðfylgjandi auglýsingu. Verið öll hjartanlega velkomin!
Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara á morgun þriðjudag 18. nóv. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Dagný Heiðdal, skráningarstjóri Listasafns Íslands, flytur erindi sem ber yfirskriftina “Perlur í safneign Listasafns Íslands”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!
Næsta GÆÐASTUND eldri borgara verður næstkomandi þriðjudag 18. nóv. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Dagný Heiðdal, skráningarstjóri Listasafns Íslands, flytur erindi sem ber yfirskriftina “Perlur í safneign Listasafns Íslands”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!
Messa kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju, syngur. Organisti og kórstjóri er Erla Rut Káradóttir. Sif Jónsdóttir, nemandi við Söngskólann í Reykjavík, syngur einsöng í tengslum við kirkjusöngsverkefni skólans. Heitt á könnunni, djús og kruðerí í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.
Minnum á FJÖLSKYLDUSAMVERU á morgun MIÐVIKUDAG 12. NÓVEMBER kl. 17-18:30 í safnaðarheimili Háteigskirkju. Umsjón hefur Matthías Guðmundsson guðfræðinemi. Sjá nánari upplýsingar á meðfylgjandi auglýsingu. Verið öll hjartanlega velkomin!
Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara í dag, þriðjudag 11. nóv. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Jón Atli Benediktsson, prófessor í verkfræði og fyrrv. rektor Háskóla Íslands, flytur erindi sem ber yfirskriftina “Að stjórna háskóla”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!
Næsta GÆÐASTUND eldri borgara verður næstkomandi þriðjudag 11. nóv. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Jón Atli Benediktsson, prófessor í verkfræði og fyrrv. rektor Háskóla Íslands, flytur erindi sem ber yfirskriftina “Að stjórna háskóla”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!
Messa kl. 11. Kristniboðsdagurinn. Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sóknarpresti sr. Helgu Soffíu Konráðsdóttur. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Guðný Alma Haraldsdóttir. Heitt á könnunni, djús og kruðerí í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.