
messa kl 11
Guðsþjónusta kl.11 sunnudaginn 2. maí.
Félagar í Kordíu kór Háteiskirkju leiða messusöng.
Organisti er Guðný Einarsdóttir
Prestur er Eiríkur Jóhannsson.
Gallerí Göng

Jóhanna V Þórhallsdóttir
Vorflug á veirutímum
til 18.maí
Vorflug á veirutímum er yfirskrift sýningar Jóhönnu V Þórhallsdóttur myndlistar og söngkonu sem opnar á sunnudaginn 18. apríl nk. Í Gallerí Göngum við Háteigskirkju. Opnunin verður klukkan 14-17 og verða allar sóttvarnarreglur virtar.
Yfirskrift sýningarinnar er Vorflug á veirutímum en Jóhanna er mikil vorkona. Hún er fædd í hrútsmerkinu og á einmitt afmæli á opnunardaginn. Tónlistin leikur stórt hlutverk þegar hún málar og þessi verk eru mörg, t.a.m. unnin við margs konar tónlist, bæði jazz og klassík.
Þetta er 7. einkasýning Jóhönnu hér á landi, en síðast tók hún þátt í samsýningu í Bad Reichenhall í suður Þýskalandi.
Jóhanna lauk meistaranámi hjá prófessor Heribert Ottersbach í Þýskalandi í nóvember árið 2019. Áður hefur Jóhanna lokið námi hjá Markúsi Lüpertz í Þýskalandi að afloknu námi hér heima. Jóhanna hefur stjórnað sýningum í Gallerí Göngum frá árinu 2018.
Sýningin er opin á virkum dögum kl 10-16 og um helgar eftir samkomulagi og verður það auglýst sérstaklega á feisbókinni og á heimasíðu kirkjunnar. www.hateigskirkja.is
Á opnuninni verður boðið uppá léttar veitingar og eru allir hjartanlega velkomnir!

fermingar
Fermingu sem vera átti 5.apríl, annan í páskum, kl. 10:30 er frestað af sóttvarnarástæðum. Hið sama gildir um fermingarnar 5. apríl og 11. apríl.

Gæðastundir
Kæru Gæðastundavinir.
Við hér í kirkjunni ykkar, Háteigskirkju, höfum ákveðið að Gæðastundirnar okkar verði ekki fleiri í vor. Hlökkum til að taka á móti ykkur í haust, þegar allir verða bólusettir. Aftur á móti viljum við bjóða upp á Guðsþjónustu á Uppstigningardag fimmtudaginn 13.maí kl. 14, vonandi með kaffi í safnaðarheimilinu á eftir. Þessi stund verður auglýst betur síðar. Sumarkveðjur og sólskinsbros til ykkar allra, fyrir hönd okkar allra.
Rannveig Eva Karlsdóttir
Viltu leigja salinn?











Fermingar 2021
Árið 2021 verða fermingardagarnir
28. mars
5. apríl
11. apríl.
Gallerí Göng
Opið alla virka daga kl 10-16 og á sunnudögum kl 11-12




