Foreldramorgunn á morgun, miðvikudag 17. apríl kl. 10-11:30

Minnum á Foreldramorgunn á morgun, miðvikudag 17. apríl á milli kl. 10-11:30 í Setrinu, kaffistofurými á 1. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Leikstund fyrir börnin, foreldraspjall og léttar veitingar/kaffi/te.
Foreldrar með ungabörn verið velkomin !

Gæðastund á morgun, þriðjudag 16. apríl kl. 13:30-15

Minnum á Gæðastund eldri borgara, á morgun þriðjudag 16. apríl kl. 13:30-15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Á þessari Gæðastund mun Steinunn Jóhannesdóttir, rithöfundur og leikhúsmanneskja, flytja seinni hluta erindis sem ber yfirskriftina “Hallgrímur Pétursson og Guðríður Símonardóttir – Merkilegir einstaklingar og athyglisverðasta parið á Íslandi á 17. öld.“
Hlökkum til að sjá ykkur !
Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem ávallt er boðið upp á kaffi og góðar veitingar.
Tími: Þriðjudaga kl. 13:30-15.
Staðsetning: Safnaðarheimili Háteigskirkju (norðurinngangur) í veislusal á 2. hæð.
(Meðfylgjandi myndir eru frá góðri Gæðastund sl. þriðjudag 9. apríl en þá flutti Daði Guðbjörnsson, myndlistarmaður, erindi sem bar yfirskriftina “Listin og lífið”).

Sunnudagur 14. apríl

Messa kl. 11. Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Arngerður María Árnadóttir. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Heitt á könnunni að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Foreldramorgunn á morgun, miðvikudag 10. apríl, kl. 10-11:30

Minnum á Foreldramorgunn á morgun, miðvikudag 10. apríl á milli kl. 10-11:30 í Setrinu, kaffistofurými á 1. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Leikstund fyrir börnin, foreldraspjall og léttar veitingar/kaffi/te.
Foreldrar með ungabörn verið velkomin !

Gæðastund á morgun, þriðjudag 9. apríl kl. 13:30-15

Minnum á Gæðastund eldri borgara, á morgun þriðjudag 9. apríl kl. 13:30-15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Á þessari Gæðastund mun Daði Guðbjörnsson, myndlistarmaður, flytja erindi sem ber yfirskriftina “Listin og lífið”.
Hlökkum til að sjá ykkur !
Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem ávallt er boðið upp á kaffi og góðar veitingar.
Tími: Þriðjudaga kl. 13:30-15.
Staðsetning: Safnaðarheimili Háteigskirkju (norðurinngangur) í veislusal á 2. hæð.
(Meðfylgjandi myndir eru frá góðri Gæðastund sl. þriðjudag 19. mars en þá flutti Steinunn Jóhannesdóttir, rithöfundur og leikhúsmanneskja, fyrri hluta erindis sem ber yfirskriftina “Hallgrímur Pétursson og Guðríður Símonardóttir – Merkilegir einstaklingar og athyglisverðasta parið á Íslandi á 17. öld.“. Steinunn flytur seinni hluta erindisins á Gæðastund þriðjudaginn 16. apríl.)

Sunnudagur 7. apríl – fermingarguðsþjónusta kl. 10:30

Sunnudagur 7. apríl. Fermingarguðsþjónusta kl. 10:30. Jón Hafsteinn Guðmundsson leikur á trompet.
Kordía, kór Háteigskirkju syngur.
Organisti er Erla Rut Káradóttir.
Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir,
sr. Davíð Þór Jónsson.

Dagskrá Gæðastunda á vormisseri 2024 í Háteigskirkju heldur áfram næstkomandi þriðjudag 9. apríl kl. 13:30-15

Dagskrá Gæðastunda eldri borgara á vormisseri 2024 í Háteigskirkju heldur áfram eftir páskafrí næstkomandi þriðjudag þann 9. apríl kl. 13:30-15:00. Sjá dagskrá hér:

Dagskrá Gæðastunda í Háteigskirkju vormisseri 2024

Tími: Þriðjudaga kl. 13:30-15.
Staðsetning: Safnaðarheimili Háteigskirkju (norðurinngangur) í veislusal á 2. hæð.

Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem boðið er upp á kaffi og góðar veitingar. Aðgangur er gjaldlaus (frjáls framlög).

Verið hjartanlega velkomin !

Dagskrá:

30. jan Tómas R. Einarsson, tónlistarmaður og rithöfundur (Dalamaður finnur nýjan tón í Havana)

6. feb Guðný Einarsdóttir, skólastjóri Tónskóla þjóðkirkjunnar og söngmálastjóri þjóðkirkjunnar
(Ævintýraheimur orgelsins)

13. feb Magnús Skúlason, fyrrv. formaður húsafriðunarnefndar ríkisins (Innsýn í íslenska
byggingararfleifð)

20. feb Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari og rithöfundur (Tekist á við tímann – Í Varanasi á
Indlandi)

27. feb Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, rithöfundur, tónlistarmaður og útgefandi (Ljóð, sálmar og
söngvar)

5. mars KONFEKTBINGÓ (Við spilum bingó saman undir léttum tónum – vinningarnir eru ljúffengt
súkkulaði).

12. mars Hildur Hákonardóttir, myndlistarkona, rithöfundur og grasnytjungur (Ævisaga árshringsins)

19. mars Steinunn Jóhannesdóttir, rithöfundur og leikhúsmanneskja, Fyrri hluti erindis (Hallgrímur
Pétursson og Guðríður Símonardóttir – Merkilegir einstaklingar og athyglisverðasta parið á
Íslandi á 17. öld.)

9. apríl Daði Guðbjörnsson, myndlistarmaður (Listin og lífið)

16. apríl Steinunn Jóhannesdóttir, rithöfundur og leikhúsmanneskja, Seinni hluti erindis (Hallgrímur
Pétursson og Guðríður Símonardóttir – Merkilegir einstaklingar og athyglisverðasta parið á
Íslandi á 17. öld.)

23. apríl (Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur Rvík-eystra (Hönnun og skipulag kirkjubygginga) )

SUMARFRÍ – Dagskrá Gæðastunda á haustmisseri 2024 auglýst síðar

Foreldramorgunn á morgun, miðvikudag 3. apríl kl. 10-11:30

Minnum á Foreldramorgunn á morgun, miðvikudag 3. apríl á milli kl. 10-11:30 í Setrinu, kaffistofurými á 1. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Leikstund fyrir börnin, foreldraspjall og léttar veitingar/kaffi/te.
Foreldrar með ungabörn verið velkomin !

Tilkynning frá Gallerí Göngum í Háteigskirkju – sýningaropnun miðvikudag 27. mars kl. 16-18


Boðskort – Endurgerð = Didda H. Leaman

Verið öll hjartanlega velkomin á opnun á sýningu Diddu H. Leaman, miðvikudaginn 27. mars kl 16-18

Endurgerð

Eins og nafn sýningarinnar gefur til kynna eru verkin á sýningunni endurgerðir af nokkrum verkum unnum á undanförnum árum, ásamt frummyndunum.
Þau eru abstrakt frekar en hlutbundin, eða, e.t.v. á mörkum þess hlutbundna og óhlutbundna.
Myndirnar vísa í náttúruna og ýmis fyrirbæri hennar, svo sem liti og birtuskilyrði, áhrifa frá ferðalögum milli Reykjavíkur og Hólmavíkur gætir mörgum í myndanna. Þær túlka myndheim sem stenst ekki fyrirfram gefin náttúruskilyrði. Skuggar falla sinn í hvora áttina, svo óvissa ríkir um ljósgjafa. Atriði sem heilla myndhöfund túlka huglæg náttúrufyrirbæri, þetta er náttúra sem býr í hausnum á manni, eða náttúrufyrirbæri yfirfærð í hugann, þar sem náttúrulögmálum er breytt og endurteknar tilraunir gerðar með eigin hugmyndir og fagurfræðiviðmið.

Didda H. Leaman stundaði myndlistarnám á Íslandi, Finnlandi og Bretlandi, auk þess að bæta við sig námi í kennslufræði sjónlista og sjónlýsingum fyrir blinda og sjónskerta.

Eftir námslok í málaradeild við Slade School of Fine Art, University College London bjó hún í London í 20 ár, en hefur verið búsett í Reykjavík frá 2007. Árið 2017 hófst svo Hólmavíkurævintýri Diddu, en frá þeim tíma hefur hún dvalið hluta ársins á Hólmavík.

Didda hefur dvalið í vinnustofum listamanna í Kathmandu í Nepal og Novi Sad í Serbíu. Auk fjögurra mánaða námsdvalar í Barselóna.
Didda er meðlimur SÍM og var meðlimur bow arts í Austur-London, þar sem hún var með vinnustofu. Hún var um tíma sýningarstjóri Hoffmannsgallerís, samstarfsverkefnis Myndlistaskólans í Reykjavík og ReykjavíkurAkademíunnar og meðlimur Nýlistasafnsins, auk þess að taka þátt í nokkrum verkum á vegum

Nýlókórsins. Didda var meðlimur í ARTgallerí Gátt og er einn af stofnfélögum Listfélagsins Steingrímur, sem hefur það markmið að auka aðgengi að listum og menningu á Ströndum.

Styrkir og starfslaun:

2016 Starfslaun listamanna
2015 Starfslaun listamanna (ferðastyrkur)
2015 Leónardó styrkur, til fjögurra mánaða námsdvalar í Barselóna
2014 Atvinnumál kvenna, styrkur til gerðar viðskiptaáætlunar fyrir sjónlýsingaverkefni
2013 Dvalarstyrkur Muggs til vinnustofudvalar í Nepal 2012 Nýsköpunarsjóður námsmanna, styrkur fyrir sýninguna Í Hljóði, samtímalistasýningar með sjónlýsingu fyrir blinda og sjónskerta í Hoffmannsgalleríi

Verk í eigu safna:

Listasafn Reykjavíkur Nýlistasafnið

Sýningar seinustu ára

2022, Umhverfing nr.4, Akademía skynjunarinnar, Hólmavík
2018 Svartalogn, Edinborgarhúsinu, Ísafirði, samsýning, ARTgallery Gátt

2018 Marglaga – Ferningaferli – Kyrrð, samsýning, ARTgallery Gátt

2017 Gáttaþefur, samsýning, ARTgallery Gátt

2016 Fuglasöngur og Mold, – 1-10/3- Lóa og Krummi. Höfundar, Þórunn Hjartardóttir og D.H.L. 6.02. tvö hljóðverk flutt af Nýlókórnum í safni Einars Jónssonar, stjórnandi Þráinn Hjálmarsson.

2015 Síendurtekin lög, Sím-salurinn, Reykjavík, einkasýning

2013 Tilfærslur, Gryfjan, Listasafn ASÍ, einkasýning 2013 Paralell Journeys, KCAC Patan, Nepal
2013 Undir berum himni, samsýning í Þingholtunum, hluti af dagskrá Listahátíðar í Reykjavík